Námsefni í íslensku fyrir 10. bekk
Kennsluefni í íslensku með fjölbreyttum verkefnum, kaflaspurningum, prófum og ritunarverkefnum. Efnið hefur verið prófað í íslenskukennslu í 10. bekk í þremur grunnskólum yfir heilan vetur.
Verkefnaheftið er í stafrænu formi og tilbúið fyrir rafrænt kennsluumhverfi sem Google Classroom námsefni (og sambærileg kerfi).
Verkefnin fylgja frítt með keyptum bekkjarsettum af skáldsögunni Á morgun, þegar stríðið hófst. Hafið samband til að fá nánari upplýsingar.

Söguþráður
Á morgun, þegar stríðið hófst (Á morgun-serían #1)
Ellie og vinir hennar ákveða að fara í útilegu í óbyggðum Ástralíu, skammt frá heimilum sínum, og reyna að komast djúpt ofan í gil sem kallast Víti.
Þegar þau snúa aftur heim viku seinna komast þau að því að óvinaher hefur ráðist inn í landið og fjölskyldur þeirra eru horfnar. Vinahópurinn þarf að taka erfiða ákvörðun: Þau geta flúið aftur upp í fjöllin eða gefist upp. Eða barist á móti.
Um söguna og höfundinn
Á morgun, þegar stríðið hófst gefur lesendum innsýn í lífið á hernumdu svæði, þar sem allar daglegar venjur eru foknar út í veður og vind. Í gegnum sögumanninn, Ellie, fær lesandinn að upplifa óttann sem þau upplifa en líka lífsviljann, sem birtist í öllum þeim hugmyndum sem vinahópurinn fær til að leggja sitt af mörkum í þessu óvænta stríði.
Vináttan er sterk og ástin er aldrei langt undan.
Sögupersónur
Sterk persónusköpun höfundar fær lesandann til að hrífast með vinunum og upplifa í gegnum þau hvaða áhrif stríðið hefur á þau. Í gegnum söguna geta ungmenni gert sér í hugarlund hvernig líf þeirra breytist og hvernig áður óhugsandi viðburðir verða að daglegum venjum. Höfundur byggir upp mikla samkennd með sögupersónunum.
Höfundurinn
John Marsden er ástralskur grunnskólakennari og rithöfundur sem hefur kennt börnum og unglingum í áratugi. Honum fannst mikil þörf vera á bókum sem höfðuðu til unglingsstráka, því honum fannst þeir ekki ná jafnmiklum árangri í lestri og stelpur. Hann ákvað því að skrifa bókaflokkinn Tomorrow-serían, sem telur 7 bækur.
Tilgangur John Marsden með skrifunum var að ýta undir lestraráhuga, lesskilning og orðaforða unglinga, sérstaklega unglingsstráka, sem honum fannst vanta bækur sem vöktu áhuga þeirra. Bækurnar henta samt sem áður öllum kynjum.
Þetta er vinsælasti ungmennabókaflokkur í Ástralíu.


#námsefni #unglingastig #ástralskar bókmenntir #ástralskir rithöfundar #ungmennabækur
Íslenska 10. bekkur – Verkefni fyrir 10. bekk – Námsefni fyrir unglingastig
